Hvað er Leiðsögumenn Reykjaness??

Vissir þú?


Að ef að allir hlaðnir garðar í Garði yrðu lagðir enda við enda næði sá langgarður frá Gerðum inn að Elliðaám eða um 50 km.

Leiðsögumenn Reykjaness er sjálfseignastofnun sem sett var á stofn af fimmtán útskrifuðum svæðisleiðsögumönnum árið 2005.

Markmið stofnunarinnar er stuðla að aukinni kynningu á svæðinu á meðal fagfólks í ferðaþjónustu, íbúa, almennings og ferðamanna. Efla jákvæða ímynd svæðisins sem ferðamannastaðar fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. Miðla sögu svæðisins til íbúa, almennings og ferðamanna.

Leiðsögumenn Reykjaness taka að sér að skipuleggja ferðir með leiðsögn fyrir hópa og einstaklinga. Félagar innan Leiðsögumanna hafa sett ýmis verkefni af stað t.d. hafa verið haldin Sagnakvöld í öllum sveitarfélögunum, farnar hafa verið fræðslu - gönguferðir um svæðið, einnig hafa Leiðsögumenn tekið að sér að leiða Klasaverkefni í samstarfi við Impru, að því verkefni koma flest ferðaþjónustufyrirtæki á Reykjanesi en verkefnið felst í því að stuðla að samvinnu innan ferðaþjónustu á svæðinu. Leiðsögumenn hafa tekið að sér ýmis verkefni fyrir hin ýmsu fyrirtæki á svæðinu sem tengjast fræðslu og upplýsingagjöf.  Starfsemin er drifin áfram af hugsjón og áhuga þessa öfluga hóps og á sér enga fyrirmynd á Íslandi.