Menningar- og listatengd ferðaþjónustu á Suðurnesjum

Vissir þú?


Að Í mars árið 1931 strandaði franski togarinn Cap Fagnet í Hraunsfjöru við Grindavík. Þá bjargaði björgunarsveitin Þorbjörn 38 skipverjum í land með fluglínutækjum og björgunarstól. Það var í fyrsta sinn sem slíkri aðferð var beitt á Íslandi.

Í vetur munu Leiðsögumenn Reykjaness standa fyrir Klasa fundum  sem verða ætlaðir öllum áhugasömum innan ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum.
Markmiðið er að efla tengsl og koma á samstarfi á milli þeirra fjölmörgu aðila á Suðurnesjum sem eiga hagsmuna að gæta af aukinni aðsókn ferðamanna. Með samstarfi aðila á Suðurnesjum er hægt auka samkeppnishæfi svæðisins gagnvart öðrum landshlutum með það fyrir augum að auka umsvif og veltu í ferðaþjónustu á svæðinu.
Dagskráin verður fjölbreytt m.a verður rekstraraðilum úr ferðaþjónustunni boðið að greina frá reynslu sinni, ótta, vonum og væntingum. Sérstaklega verður vakin athygli á þeim  fjölmörgu einyrkjum sem starfa að handverki og listalífi í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum, með það fyrir augum að auka möguleika þessara aðila til sóknar innan ferðaþjónustunnar.
Megin markmið Klasafundanna  er að það verði skapaður vettvangur þar sem aðilar innan ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum myndu hittast reglulega til kynnast innbyrðis og sjá tækifærin í öflugu samstarfi innan svæðisins.
Klasafundirnir verða kynntir nánar í janúar 2010.