
Umhverfisstefna
Leiðsögumenn Reykjaness ses. aðhyllast sjónarmið um umhverfis- og náttúruvernd og munu í öllum sínum gerðum taka tillit til þeirra. Við munum sjá svo um að gæði náttúrunnar skerðist ekki við ferðir okkar um hana þannig að þeir sem næstir koma geti notið sömu gæða og þeir sem á undan fóru. Við munum ekki nýta einstök svæði þannig að farið sé yfir þolmörk þeirra heldur viljum við bæta aðgengi og aðbúnað þannig að svæðin beri þann fjölda sem í þau sækir.
Leiðsögumenn Reykjaness ses. vilja stuðla að sjálfbærri þróun innan ferðaþjónustunnar og munu leggja sitt af mörgum til þess að auka umhverfisvitund sveitarfélaga, fyrirtækja og íbúa svæðisins með hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á verndun menningarlandslags og landslagsheilda með það fyrir augum að komandi kynslóðir geti notið sömu náttúrugæða og sú kynslóð sem nú fær að njóta þeirra.

Um sjálfbæra þróun
Orðasambandið sjálfbær þróun er þýðing á enska orðasambandinu sustainable development. Í skýrslu sem samin var árið 1987 undir forystu Gro Harlem Brundtland var hugtakið skilgreint með eftirfarandi hætti:
"Sjálfbær þróun er þróun sem fullnægir þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að fullnægja sínum þörfum."
Meginstoðir sjálfbærrar þróunar eru, samfélag, umhverfi og efnahagslíf. Sjálfbær þróun byggir á því að að efling einnar stoðar sé ekki gerð á kostnað anarra stoða.